AI Vegvísir · Fyrir stjórnendur og eigendur

Allir eru að tala um gervigreind.
Er þitt fyrirtæki tilbúið í samtalið?

Áður en þú fjárfestir í gervigreind þarftu að vita hvar fyrirtækið stendur. Greind AI Vegvísir gefur þér skýra mynd og forgangsraðaða leið, áður en krónu er varið í tækni eða innleiðingu.

6lykilsvið í Vegvísislíkaninu
3–4 vikurfrá fyrsta viðtali að Vegvísi
Óháðengar hugbúnaðarþóknanir
Staðan í dag
Tækifæri
Markmið
Vandamálið

Allt að gerast.
Lítið að frétta.

Fyrirtæki kaupa áskriftir, halda vinnustofur og prófa agenta, en rekstrarniðurstaðan stendur í stað. Mikið tal, mikil orka, margar tilraunir. Lítið varanlegt virði.

Áskriftir
Tilraunir
Fundir
Flækjustig
Virði

Greind skapar tæknilega og rekstrarlega yfirsýn: fyrsta verkefni sérhverrar velheppnaðrar gervigreindarinnleiðingar.

Áður en þú byrjar

Varastu þrjár algengar gildrur

Flest fyrirtæki byrja á tækninni. Það eru dýrustu mistökin, og þau algengustu.

Ekki elta hæpið

Að byggja agenta eða stökkva á nýjustu tækni án stefnu leysir engan vanda. Það býr aðeins til nýjan.

Ekki læsa þig inni

Ákvörðun sem þú tekur í dag, án yfirsýnar, getur takmarkað möguleika þína á morgun.

Ekki verða þræll birgjanna

Sá sem selur þér lausnina hefur engan hag af því að segja þér hvort þú þurfir hana.

Gildrurnar þrjár eiga eina rót: að byrja á tækninni.

Greind byrjar á yfirsýn: óháð, án söluhagsmuna, svo þú getir valið rétt áður en þú bindur hendur þínar.

Hin falda 90%

Tólin eru aðeins 10%

Verkfærin sjást ofan vatnsborðsins. En virðið, og áhættan, liggur í forsendunum undir: stefnu, ferlum, gögnum, þekkingu, ábyrgð og fólki.

Sýnilegt · verkfærin
ChatGPTCopilotClaudeSjálfvirkniAfritararAgentar
Undir yfirborðinu · forsendurnar
Stefna
Ferlar
Gögn
Þekking
Ábyrgð
Fólk
Greind Vegvísislíkanið

Sex forsendur fyrir gervigreind

Við metum hverja forsendu og hjálpum stjórnendum að sjá hvar tækifærin liggja og hvaða grunn þarf að byggja.

01

Stefna

Hvert ætlar fyrirtækið og hvernig styður gervigreind við markmið þess?

Án skýrrar stefnu verður AI tilviljanakennd tilraun. Við tengjum gervigreind við raunveruleg markmið fyrirtækisins.

02

Ferlar

Hvernig fer vinnan fram og hvar liggja tækifæri til umbóta?

Gervigreind getur aðeins stutt ferla sem eru skiljanlegir. Fyrst skiljum við hvernig vinnan fer raunverulega fram.

03

Þekking

Hvar býr þekking fyrirtækisins og hversu aðgengileg er hún?

Þekking er hráefni gervigreindar. Oft er hún föst í tölvupóstum, gömlum skjölum og hausnum á lykilfólki.

04

Gögn

Eru gögnin aðgengileg, áreiðanleg og nýtanleg til greiningar?

Ef stjórnendur treysta ekki KPI tölum í dag munu þeir ekki treysta AI niðurstöðum á morgun.

05

Ábyrgð & stjórnarhættir

Hver ber ábyrgð, hvernig eru ákvarðanir teknar og hvaða reglur gilda?

Ef enginn á AI mun enginn bera ábyrgð á árangri, eða á Shadow AI sem þrífst án yfirsýnar.

06

Fólk & menning

Er starfsfólk tilbúið til að nýta gervigreind og taka þátt í breytingum?

AI breytir vinnu fólks. Traust, þjálfun og breytingastjórnun ráða úrslitum um árangur.

Ef þú værir að stofna fyrirtækið í dag, hvernig myndir þú hanna það?

AI Vegvísir byrjar ekki á að velja ChatGPT eða Claude. Hann leggur grunninn að því að gervigreind skili raunverulegu virði, stefnu, ferla, gögn og ábyrgð áður en tæknin er valin.

Ferlið

Frá viðtali að Vegvísi á 3–4 vikum

Einfalt ferli, fagleg framsetning. Allt að 6 viðtöl, tækifæravinnustofa og stjórnendaskýrsla.

1
Vika 1

Upphaf

Markmið, umfang og þátttakendur skilgreind.

2
Vika 1–2

Viðtöl

Allt að 6 viðtöl við lykilstjórnendur.

3
Vika 2

Stöðumat

Sex lykilsvið metin og kortlögð.

4
Vika 2–3

Vinnustofa

Tækifæri greind með stjórnendateymi.

5
Vika 3

Greining

Forgangsröðun, áhættumat og stigagjöf.

6
Vika 4

Afhending

Vegvísisskýrsla og stjórnendakynning.

Afurðin

Virðið liggur í greiningunni, ekki tækninni

Með því að greina tækifærin út frá ferlum, gögnum og þekkingu sjást réttu tækifærin, og þeim er forgangsraðað eftir virði og raunhæfni. AI Vegvísir er ekki skýrsla sem endar í skúffu, heldur grunngagnið í AI stefnumótun fyrirtækisins til framtíðar, sett fram á skýran og auðskiljanlegan hátt í gegnum gagnvirkan aðgang að heimasvæði fyrirtækisins.

01 · Stjórnendamæling

Greind Stöðuvísir

68/100
Trauststuðull 91%

Heildarstaða fyrirtækisins í einni tölu.

02 · Yfirlit

Hitakort

StefnaFerlarÞekking GögnÁbyrgðFólk

Staða á sex sviðum: grænt, gult, rautt.

03 · Jafnvægi

Sviðaskor

Radarmynd af styrk og veikleikum.

04 · Forgangur

Forgangskort

VirðiFlækjustig

Fljótlegir sigrar vs. byggingarverkefni.

05 · Stjórnarhættir

AI Stjórnunarkort

Eignarhald
Kostnaðarstýring
Módelstefna
Shadow AI
Persónuvernd
Aðgangsstýring
Öryggi
Virðismæling

Átta þættir AI stjórnunar metnir.

06 · Leiðin áfram

AI Vegvísir

0–90 dagar
3–12 mán.
12–24 mán.

Forgangsraðaður vegvísir í þremur tímabilum.

Mosi · Verkefnaminni

Mosi man allt sem skiptir máli.

Mosi er ekki spjallmenni. Hann er lifandi minni verkefnisins. Varðveitir fundi, ákvarðanir, tækifæri og samhengi frá upphafi til enda. Þannig notum við gervigreind í eigin vinnu, ekki bara í kynningarefni.

Mosi · VerkefnaminniFyrirtæki X · verkefnaminni
Hvað ákváðum við um AI kostnaðarstýringu?
Á CFO-fundi 14. mars var ákveðið að fjármálasvið beri ábyrgð á AI kostnaði og að dýrari módel þurfi samþykki. Ákvörðunin tengist veikleika í Stöðuvísi (kostnaður ósýnilegur).
CFO viðtalFundur 14.03Stöðuvísir

Af hverju Mosi

Ekkert mikilvægt tapast í verkefninu: ekki ákvarðanir, rökstuðningur né samhengi.

Hvað hann gerir

  • Fundargerðir og ákvarðanir
  • Tækifæri og áhættur
  • Svör með heimildum úr verkefninu

Virðið fyrir þig

Þú færð ekki bara skýrslu, heldur 60 daga aðgang að lifandi verkefnaminni eftir afhendingu.

Af hverju Greind

Óháður ráðgjafi, ekki hugbúnaðarsali

Greind er ekki bundið ákveðinni lausn, birgja eða tæknistakki. Við leiðum verkefnið; sérfræðinganetið styrkir það þegar þörf krefur.

Engar þóknanir

Við fáum ekki greitt fyrir sölu lausna. Þess vegna eru ráðin okkar óháð, og sannleikurinn óþægilegur þegar hann þarf að vera það.

Gögn og rekstur fyrst

Við komum úr gögnum, mælingum og rekstri, ekki úr markaðssetningu á gervigreind. Þess vegna sjáum við hvað raunverulega virkar.

Skýrleiki á undan innleiðingu

Við hugsum áður en keypt er. Greining fyrst, innleiðing svo, aldrei öfugt.

Á undan kúrfunni

Verkfærin okkar og þróunarumhverfi

AI umhverfið breytist hratt og við fylgjumst með hverri hreyfingu. Við notum sjálf lausnirnar sem við mælum með og þekkjum styrkleika þeirra og veikleika af eigin raun. Þannig getum við ráðlagt þér um raunverulegar lausnir. Hvað er virði og hvað er bara hávaði.

OpenAI
Claude
Perplexity
Google Cloud
Amazon Web Services
Cursor
Claude Code
LangGraph
n8n
Python
dbt
Snowflake
Pinecone
PostgreSQL
Næsta skref

Ætlar þitt fyrirtæki að skara framúr, eða dragast aftur úr?

Fyrsta skrefið er eitt samtal. Engin skuldbinding, engin söluræða, bara skýr fyrsta sýn á hvar fyrirtækið þitt stendur og hvert það getur farið.